Opnunartími er frá kl. 10:00 - 23:00 alla virka daga....*Fyllerí um helgar*
18.10.2008 01:43:52 / konni

Höfuðlausn

Hæ. Ég endaði síðustu færslu á að monta mig, sagði að ég væri að fara til Barcelona með Steinullinni. Það kom svo upp á daginn að Heimsferðir höfðu aflýst öllum sínum ferðum í nóvember. Svona er þetta það eru allir að aflýsa öllu í dag. Áður en ég veit af að þá er búið að klippa á enska boltann hjá mér og síminn (ADSL) farinn á hausinn. Þá fyrst fer ég í víking til Kanada. En einn bjartur punktur er í þessu og hann er sá að ég fæ að sjálfsögðu fargjaldið hennar Ragnhildar endurgreitt, sem er ágætis summa. Ætli ég setji ekki auranna inn á öruggan og vaxtamikinn markaðsreikning og læt þar upphæðina hækka og snerti hana ekki í þrjúr ár.. Haha nei! Ætli ég fari ekki bara í aðra ferð á næsta ári. Hljómar Old Trafford þá alls ekki illa.
Vil óska Rúnari frænda til hamingju með að hafa verið valinn í u19 landsliðið og spila með þeim í Makedóníu. Gekk svona upp og niður en það er bara vegna þess að hann er með ræflum í liði sem hafa aldrei stigið fæti í sveit eða út á bryggju.
Kreppa, óvissutímar og ringulreið. Ekki hjá mér en það gæti kannski breyst. Nei ég trúi því ekki. Það var miði í matsalnum í dag þar sem boðað var til starfsmannafundar næsta föstudag. Óvissutímar ræddir, eða þá að við mætum svo eftir helgi og þá er búið að hengja plakat á útidyrahurðina "Takk fyrir samstarfið"
En ég var að horfa á fréttirnar í vikunni, geri mikið af því. Annars get ég ekkert spjallað við suma í vinnunni. En alla vega að þá sá ég fréttina um amfetamínverksmiðjuna í Hafnafirði. Þetta eru sko klárir karlar. Kunna að hugsa og redda sér. Fólk fer ekkert að hætta í eiturlyfjum í kreppunni, þeim er alveg sama þó að einhver efnahagur hafi hrunið. Þriðjungur af þeim veit ekki einu sinni hvað efnahagur er. Þannig að þessir menn hefðu verið að stórgræða næstu mánuðina á amfetamínsölu út um allan bæ. Ég meina hefur einhver hætt í eiturlyfjum því hann hafði ekki efni á því? "Heyrðu þú ert bara edrú í dag gamli, gott hjá þér"  "Já.. Ég bara hef engan veginn efni á þessu, grammið rándýrt og ég á ekki einu sinni fyrir kveikjara.." Nei! Af hverju höfum við bankarán? Því að fíklar finna alltaf leið og eru úrræðagóðir, fyrir utan það að vera skítseiði.
En já mergur málsins er reyndar ekki sá að selja eiturlyf hér í landi, viljum ekki að fíklarnir fari að ræna nýju bankana. Heldur hefðum við átt að þjóðnýta þessa verksmiðju, flytja út þetta er jú landsframleiðsla. Gætum komið upp mörgum skemmum í 101 og jafnvel gert tilraunir til að rækta Kókaín undir Esjunni. Hver ætli aðal útflutningsvara Kólimbíu sé?
Það má alla vega hugsa þetta. Þyrfti ekkert að standa lengi yfir, bara svona tvö ár. Geir væri þá ekki lengur titlaður forsætisráðherrna heldur barón. Allir á þinginu væru svo nokkurs konar milliliðir eða "dílerar". Segjum þetta gott, bless bless.
Ég hata eiturlyf.



» 4 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 19:14:17 / konni

Kreppa

Hæ. Ástandið er víst ekki gott þessa dagana. Kreppa og leiðindi sem ég veit reyndar ekkert um. Hvers vegna ekki? Því ég hef bara engan áhuga á því. Með því að vera ómeðvitaður helst ég rólegur og reyndar svolítið heftur í vinnunni. Á hverjum einasta vinnustað í dag eru efnahagsmálin rædd. Allir eru svo vitrir í sínum rökum og vita betur en þeir sem landinu stjórna. Öllu er blöskrað og einföld lausn er lögð fram og miðað við lausnir sem ég hef heyrt að þá tæki það tíu almenna borgarbúa, valda af handahófi, hálfan sólarhring að redda málunum. Það að leysa málin, eins og þau eru í dag, tekur langan tíma og mikil pappírsvinna er á bakvið þetta allt saman. Og það er enginn að segja mér að einhver almennur borgari, segjum bara verkamaður, ákveði einn daginn að hann ætli að fara og kynna sér þessi mál. Setjist niður með 26 hnausþykkar möppur fari að lesa sér til um efnahagsmál ríkisins. Ef einhver hefur gert það að þá tel ég hann mikinn mann. Svo eru margir bara að segja það sem einhver sagði þeim og sá maður getur verið í hvaða ástandi sem er. Hann getur verið nýbúinn að bakka yfir hundinn sinn og segir því að þetta eigi bara eftir að versna og enginn viti neitt. Segjum að næsti maður sem þú hittir sé nýbúinn að snyrta limgerðið hjá sér og er voðalega ánægður með það. Hann er á allt öðru máli. "Jájá þetta lagast" segir hann. Alla vega hef ég tekið eftir þessu á götum bæjarinsog skiptir þá oft engu máli í hvaða flokki þeir eru. En nóg um þetta.

Ég varð tvítugur þann 25.sept sl. Dásamlegt alveg að geta rölt í áfengisverslun og keypt sér sitt lítið af hverju en ekki vera með reiðufé, einhverja ákveðna tegund af bjór og ákveðið magn tilbúið. En ég hélt nú að konan sem afgreiddi mig myndi spyrja mig um skilríki og því var ég með hendina tilbúna og hélt utan um kortið. En viti menn nei ég var ekki spurður, svolítið vonsvikinn þannig að ég fór aftur seinna þann dag og reyndi virka svolítið óstyrkari. Þið vitið, hóstandi, klórandi mér í hnakkanum, haltra og spyrja hvar bjórinn sé geymdur.. En nei skilríki óþörf. Hvers vegna var ég ekki löngu byrjaður á þessu? En þetta er langt síðan og það er kominn 8.október, kominn vetur. Það var nú alveg greinilegt hérna um daginn að vetur konungur var mættur. Eldri borgarar og unglingar nýkomnir með próf eru stórhættuleg þegar fyrstu hálkublettir vetrarins koma. Bara saklaus búðarferð getur breyst í stórslys. Fór í Hlíðarkaup um daginn, er að búa mig undir að beygja útaf planinu þegar eldri hjón koma og ætla að beygja inn. Í fyrsta lagi halda þau, eins og örugglega margir, að það megi ekki keyra út af planinu í gegnum innkeyrsluna sem er nær Furukoti. En það má! Og því segir konan við manninn sinn "Gættu þín Gísli minn, það er einhvern glæpamaður að beygja þarna" Því rífur hann of snemma í stýrið sem gerir það að verkum að bílinn rennur. Og það var ekki þeim að þakka að ekki varð óhapp. En svona er þetta veturinn fer, áður en ég veit af er kominn 6 nóv. og ég í vél á leiðinni til Barcelona með Steinullinni. Nóg í bili, bless.


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 17:45:50 / konni

Tyrkland

Hæ. Já ég hefði nú haldið það, þá er maður kominn heim frá Tyrklandi og af nógu að taka. Svo ég fari nú svona yfir þetta á hundavaði að þá ætla ég að punkta niður nokkra atburði. Myndavélin var tekin með og eru klippurnar ófár og bíða þess að horft verði á þær. En að sjálfsögðu þurfa þær náttúrulega að fara í gegnum ritskoðun og mun það sennilega helminga fjöldann.
  • Flogið út 26 maí
  • Millilentum í Frankfurt og upphófst þar mikil leit að hliðinu okkar
  • Lentum í Tyrklandi um 22:00 og komin upp á hótel 2 tímum síðar
  • Hófst leit Frigga að einstaklingum til að fara í sjómann við
  • Mikil ölvun átti sér stað fyrsta kvöldið
  • Strákar reknir upp á herbergi kl 06:00 fyrir að vera fullir í sundlauginni
  • Strákar aftur reknir upp á herbergið kvöldið eftir fyrir að vera fullir í lauginni
  • Vinskapur drengjanna og næturvarðarins fóru dvínandi með hverjum deginum
  • Leigður var hraðbátur oftar en einu sinni
  • Farið var í "parasailing"
  • Friggi hélt áfram að senda út hólmgönguboð
  • Skotist var 7 klst. siglingu þar sem áfengi var frítt
  • Siglingin á aðeins 1500kr.
  • Hótelbarþjónn tók áskorun Frigga
  • Valdi laug því út um allan bæ að hann hefði verið í Írak
  • Dyraverðir voru farnir að heilsa honum að fyrra bragði
  • Farið var í sundlaugagarð sem mér fannst sæmilegt í og er það eiginlega vegna þess að ég er ekki 11 ára lengur
  • Hjólabátarnir gerðu góða lukku, sérstaklega þegar hann gerði haugasjó og menn þurftu að henda sér út í til að draga bátinn í land.
  • Friggi fann engann í sjónum til að glíma við
  • Reynt var að selja okkur gleðikonu á öðrum degi
  • Eiturlyf á þriðja
  • Ég eyðilagði símann minn síðasta kvöldið, var hrint ofan í gosbrunn á næturklúbbi
  • Takk Valdi
  • Hver hefur gosbrunn á næturklúbbi?
  • Sigurjón Kjartansson var með í ferðinni en því miður á öðru hóteli
  • Fengum að halda á hlaðinni byssu lögreglumanns
  • Friggi var ekki með til að skora á hann í sjómann
  • Hótelbarinn gerði góða lukku alla ferðina og fóru nokkrir þúsundkallarnir þar ásamt nokkrum afsölum
  • Millilent á heimleiðinni á Englandi
  • Kominn heim 10 júní

Ég gæti skrifað í allan dag um ferðina en læt það vera, hittið mig frekar á spjalli yfir góðum kaffibolla og ástarpungum.
En þá að máli málannna. Meðan ég var úti fékk ég að heyra fréttir heiman að og snerust þær um ísbjörn á Þverárfjalli. Var það Guðni sem hringdi í mig og hugsaði ég fyrst með mér að  hérna væri eitthvað gott grín í gangi. Svo var ekki. Þegar heim var komið fékk fleiri og betri fréttir af þessu máli og mun ég seint skilja hvaða örlaga fífl vildu ná honum lifandi. Það var bara ekki möguleiki á að ná honum í þessum aðstæðum. Fínt, flott! Náið í gám og beitu, hvað svo? Ætlið þið að lokka hann þangað? Þetta er ekki beint eins og að smala hrossum, þú labbar ekkert bara að honum hóandi og klappandi saman höndum. En nóg um þennan og að næsta því annar björn fannst svo tæpum tveimur vikum síðar á svipuðum slóðum og sá fyrri. Ef ég væri bóndi á Hrauni hefði ég farið út, skotið hann, urðað hann og ekki sagt nokkrum manni frá því. Étandi öll þessi egg og væntanlega búinn að eyðileggja mikinn hluta varpsins. Þó kemur það í ljós eftir ár, en það pældi enginn í því að Æðarfuglinn er friðaður. Það er ekki blóðþorsti að vilja skjóta björninn heldur er það bara það skynsamlegasta í stöðunni. Það var bara heppni að hann skildi vera rólegur svona lengi.
Svo í dag hefur lögreglan verið að leita að þriðja birninum en án árangurs. Fólk sem var á vappinu sá víst eitthvað hvítt og þunglamalegt færast úr stað. Er það bara orðið nóg í dag? Ég er nú hræddur um að ef þeir finna ekki neitt í dag að þá fer þetta að verða svona úlfur, úlfur dæmi.
Á morgun er ég nú á leiðinni upp skrifstofu til yfirmanns míns að biðja um ísbjarnaálag, því það er ekki vinnandi í svona ótta. Steinullin er nú þannig staðsett að fyrst þeir eru að spígspora þarna uppi á Skaga að þá er ekki langt í verksmiðjuna fyrir þá. Ég hætti mér vart út úr lyftaranum þegar ég er úti á plani. Ég hrekk upp á nóttunni þar sem ísbjörn hefur náð mér þar sem ég er að fara með ull út í gám. Ég kíkji fyrir hvert horn bara svona til að vera öruggur. Hvernig haldiði að það sé að vinna í svona löguðu? Segi svona. En það er ekki meira frá mér í bili, bless bless.


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 22:29:49 / konni

Endurkoma

Já góða kvöldið. Frekar litlaust þriðjudagskvöld og ég hef ákveðið að dusta af lyklaborðinu, það heimsóttu mig ekkert þrír andar í nótt eða neitt svoleiðis, bara ákvað að tjá mig á vefnum. En ég veit ekki alveg hvað olli þessari þurð en ég hef nú ákveðið að bæta úr því með því að koma með færslu a.m.k. tvisvar í viku. Veit ekki alveg hvort þessa síða verður áfram í notkun eða ég færi mig yfir til .bloggar.is enda hefur ýmislegt breyst á blog.central síðan síðast.
En það sem hefur breyst hjá mér er að ég tók mitt síðasta próf í FNV í dag, takk takk. Útskrift þann 24.maí og útskriftarferð til Tyrklands þann 26.maí í tvær vikur. Ekkert slæmt við það. Sé bara fram á gott sumar í alla staði. Fótboltinn frábær, vinnan góð og svo að sjálfsögðu EM í fótbolta. Jú svo eru reyndar Ólympíuleikarnir í Kina í sumar, væntanlega. Það er nú meira brasið með þennan kyndil, veit ekki alveg hvort þeir eru komnir með hann til þarna XiXang eða YungHo eða hvað sem borgin heitir. En það er náttúrulega reynt að halda í gamlar hefðir og spígsporað um gervalla Evrópu (held það) með þetta. Það er líka bara smá brot sem veit hvers vegna það er verið að leggja þetta á sig. Ég þekki söguna á bakvið maraþonhlaupið
en varðandi kyndilinn þá gríp ég í tómt. Langbest væri bara að sleppa þessu, þetta skapar fátt nema vesen og skrílslæti. Það var nú bara á forsíðu Fréttablaðsins um daginn, einhverjir asíubúar alveg brjálaðir. Þurfti að slökkva logann og keyra restina sem upp á vantaði í rútu.
Og svo er nú ekki eins og leikunum yrði bara aflýst ef einu landi yrði sleppt í þessari krossferð kyndilsins. Svo fyrst það "má" ferðast með hann i rútu afhverju þá ekki að stíga skrefið til fulls og fara með hann í lágflugi í þyrlu? Það eru ekki einhverjir asíubúar að fara að mótmæla í háloftunum, eða bara leggja það á sig að reyna það. Smá pæling.
Það hefur svo mikið gerst síðustu vikur að ég gæti eytt öllu kvöldinu í upprifjun, en það ætla ég að láta ógert. Héðan í frá verða fersk skrif hérna sem oftast. Takk fyrir mig og bless bless.


Kv. Konni - Sem saknaði leiksins





» 6 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 14:07:36 / konni

Hátíð

Hæ. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan síðast. Jólin, áramótin og Þrettándinn voru á sínum stað og átti ég notaleg Jól í faðmi fjölskyldunnar. Ég vann reyndar mikið í fríinu sem var alls ekki ætlunin en skjótt skipast veður í lofti. Þrátt fyrir mikla veru í Steinullinni reyndi ég að verja sem mestum tíma í jólaundirbúninginn hérna heima. Ég er sem fyrr þriðji reynslumesti einstaklingurinn á heimilinu þegar kemur að jólahaldi og skiptir því nærvera mín miklu máli. Ég er afar minnugur maður auk þess að hafa frábært smiðsauga og er iðulega leitað eftir mínu áliti þegar á að fara að hengja upp myndir eða veggteppi. Þess vegna mun hillum, ætluðum fyrir myndir, fjölga eftir að ég flyt að heiman því hver á að leiðbeina? Hvað minnið varðar að þá líður ekki sá dagur að einhverju vandamáli tengdu minnisleysi sé ýtt að mínum bæjardyrum. Spurningar eins og "hvar er Feykir?" og "hvað er í sjónvarpinu í kvöld?" eru afar vinsælar. En góðu minni fylgir gríðarleg ábyrgð, iðulega þarf ég að vera varkár og uppljóstra ekki endalokum bíómynda. Einnig er ég ekki sá vinsælasti í Trivial.
Á aðfangadegi var ég vakinn með hrópum og köllum. Meðvitaður þó um hvað væri að gerast gekk ég þreytulega upp stigann og sá þar jólasveina tvo, hýra á brá. Stórkostleg hefð alveg hreint og var þetta algjörlega ómissandi þáttur þegar ég var yngri. En þegar þú ert orðinn eldri og ert kominn með skyldur á heimilinu varðandi jólin eins og raða skónum í forstofunni þá getur það verið agalega svekkjandi að sjá tvo rauðklædda asna þeyta þeim út og suður. Ég reyndar ætti ekki að vera að kvarta, því upp úr hádeginu var farið í okkar árlega bolta á aðfangadag. Það er segin saga að gervigrasbolta fylgir ógnarmikið magn af svörtu kurli. Enda sá ég jólaneistann slokkna í augum föður míns þegar ég spígsporaði inn í stofu með slóðina á eftir mér. Hann nýlega búinn að ryksuga og skúra. Eftir boltann var möndlugrauturinn sem mér gekk enn einu sinnu úr greipum eftir þrjú sigursæl ár í röð, 97, 98 og 99. Vann nú reyndar 2002 að minnir en afasalaði mér titlinum vegna góðmennsku og engu öðru.
Áramótin voru ósköp ljúf. Keyptir voru flugeldar sem námu að jafnvirði 8 brunnum í Afríku. Peningum vel eytt?
Þrettándinn var enn og aftur eins tilgangslaus og hann er því eins og allir menn vita að þá enda Jólin 27.desember. Þá ertu búinn að taka upp gjafirnar og búinn að fara í jólaboð í báðum ættum til að þakka fyrir þig. En þrátt fyrir það hefur ávallt verið þrettándadansleikur og var hann nú í Árgarði. Eftir miklar vangaveltur var ákveðið að fara og keyrði ég (tek það sérstaklega fram).
Á ballinu voru mörg kunnuleg andlit en þau ókunngu voru samt í meirihluta. Talsvert var af eldra fólki og er það alltaf jafn ánægjulegt. En ég verð að segja eitt varðandi eldra fólkið og þrettándaballið, sem á reyndar líka við Jónsmessuballið. Á þessum böllum þarftu að panta borð þannig að ef þú gleymir því eða ert að fara á ball í fyrsta skiptið og einfaldlega vissir það ekki þá mátt þú bara ekki setjast vinur minn. Trúðið mér ég hef látið reyna á þetta og yfirleitt verið flæmdur á brott. Það einmitt gerðist á ballinu núna, atburðarásin var svohljóðandi: Ég og Ragnhildur gengum inn í salinn og sá ég þar foreldra mína og vinafólk þeirra sitja við sitt borð og göngum við til þeirra. Fullt er á borðinu og því tek ég stól á næsta borði þar sem enginn situr. Sirka 5 mínútur líða og þá hefur gammurinn.. Já gleymdi að nefna það! Sko, hvert borð kýs einhvern einstakling til að vera gammurinn og felst sú ábyrgð meðal annars í ófríðindum og miklu arnarauga (yfirsýn). Gammurinn þarf stöðugt að vera á sveimi þegar fólkið yfirgefur borðið sitt því þá má enginn annar sitja við það, enginn! Svona var þetta einmitt hjá okkur. Rétt búin að tilla okkur þegar að gammur kemur að borði sínu (stundum með 1-2 með sér til að sýna fram á alvarleika málsins) og starir á okkur á smá stund. Og standandi, þó að það séu nóg af lausum stólum við borðið. Svo reynir gammurinn annaðhvort að horfa djúpt í augu okkar til að láta okkur finna fyrir sektarkennd eða þá að hann hreyfir hausinn til hliðanna með opið ginið og reynir að breiða út svona almenna hneykslun. Þetta er alveg fáránlegt en svona er þetta bara, lítið við þessu að gera.
Aðeins örstutt um janúar. Fótboltinn byrjaður og skólinn einnig. Pabbi varð 45 ára og Kaffi Krókur brann. Einnig er ég í liði í handboltamóti í skólanum og verður næsta blogg væntanlega helgað því, bless bless.


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 23:29:30 / konni

Vinnan

Hæ. Ég hef ekki haft eins mikinn tíma fyrir letilif mitt og ég hafði ætlað í jólafríinu. Ég hef verið að vinna og það ekki skemmtilegustu vinnuna. Frekar skítug, eintóm sérverkefni og þrif. En í dag var mér hugsað til þeirra dags er ég ákvað að hefja störf í Steinullinni. Það var nú meiri dagurinn...

Byrjaði allt með því að einn kaldan októberdag ákvað ég að sækja um í Steinullinni. Eftir ógrynni af sögum frá karli föður mínum varð ég einfaldlega að komast að því hvað væri svona sérstakt við þennan stað.
Þrem dögum eftir að hafa sótt um var ég í búðarleiðangri í Hliðarkaup fyrir föðurbróður nágranna míns. Í þann mund sem ég er að teygja mig í pela af rjóma er snúið upp á vinstri arm minn, mér slengt utan í vegg og skipað að þegja og hlusta vel. Ég skyldi mæta til vinnu eftir tvo daga og hafa meðferðis strákörfu fulla af ferskum nýtíndum ávöxtum. Mér er sleppt og ég sný mér við um leið, en þá var þessi maður horfinn brott.
Fullur efasemda mæti ég til vinnu tveim dögum síðar. Í búningsklefanum tók á móti mér hrokkinnhærður maður sem veitti ávöxtunum viðtöku og að launum flutti hann fyrir mig ljóð eftir Vigdísi Grímsdóttur og sagði að nú væri ég tilbúinn að fara inn í verksmiðjuna. Þennan mann hef ég aldrei séð eftir þennan dag.
Er ég gekk inn í verksmiðjuna virti ég fyrir mér mikilfenglegar vélarnar. Skyndilega sé ég tvo menn nálgast mig og virkaði annar þeirra hraustur mjög. Þeir sögðu að framkvæmdarstjórinn vildi finna mig frammi í pökkunarsal og ætluðu þeir að fylgja mér til hans. En áður en lagt var af stað var ég færður í rauðan fagurlagaðan kufl, ekki ósvipuðum þeim og kardínálar voru í hér forðum daga. Að lokum var mér sagt að ná ekki augnsambandi við neinn og engar snöggar hreyfingar.
Á leið okkar í átt að pökkunarsalnum varð á vegi okkar hávaxinn maður og greikkar hann sporin um leið og hann lítur mig augum. Ég vissi ekki alveg við hverju var að búast af manni þessum en fékk þó eitthvert svar er hann laust mig með staf sem hann gekk með. Um leið og hann sló mig skipaði hann mér að lúta sér og rétti hann fram hendina. Tilneyddur, kyssti ég hringana á hendi hans og  fann tár á hvammi, því höggið var jú nokkuð fast. Eftir að hafa sýnt honum virðingu mína dróg hann upp síða og mikla gráa hárkollu, setti á höfðuð mér og fór með drápu sem mér var skipað að þegja yfir um aldur og ævi.
Ruglaður og undrandi hélt ég göngu minni áfram, allt þar til ég loksins hitti framkvæmdarstjórann. Tók hann á móti mér íklæddur kastaníubrúnni kápu og með barðastóran hatt. Honum til halds og traust var maður fæddur án persónuleika og verður hann ekki nefndur á nafn hér. Stjórinn labbar hægt að mér og gengur síðan nokkra hringi í kringum mig. Á ég mér einskis ills von og er mér því brugðið við að fá þungt beltishögg á mjóbakið. Ég hníg niður en þá mælir forstjórinn, um leið og hann strýkur mér um vinstri vangann, að ég sé tilbúinn að hefja störf í Steinullinni.

Þannig var nú það, svona var fyrsti dagurinn minn í vinnunni, ekki hafði mig órað fyrir að þetta væri svona mikið mál. En launin er góð og hef ég satt best að segja reynt að gleyma þessum degi. En alla vega bless bless og gleðileg jól.

 

Hvernig er vinnan þín ?


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 01:58:31 / konni

Yfirferð

Hæ. Undanfarna daga hef ég ekki haft minnstu löngun til að skrifa á síðu vora. Hvort það sé upphafið að því að ég hætti þessu endanlega veit ég ekki, en nú hefur smá löngun til að skrifa gripið mig. Ætli það sé ekki vegna þess að ég ætti að vera að gera eitthvað allt annað. Stærðfræðipróf á morgun og svo taka við 3 önnur próf í vikunni. Þeim fækkar ört áföngunum sem ég á eftir að taka, sem er mjög gott. Er þó enn að bíða eftir því að kraftlyftingaáfanganum sem ég stakk upp á fyrir margt löngu. En með þessa stærðfræði sem ég þarf að læra að þá bara skil ég ekki alveg tilganginn. Ég mun ekkert geta bjargað mér úr lífsháska nú eða sálarháska með því að reikna ummál keilu. Það er ekkert það síðasta sem ég myndi gera ef ég væri að falla fram af þaki. En það er víst tilgangur fyrir öllu.
Eins og titillinn segir að þá ætla ég í smá yfirferð yfir síðustu vikur, eins mikið og ég man.

  • Systir mín kær varð 17 ára þann 5.nóv. sl. og var það gleðidagur. Ekki það að hún hafi orðið 17 ára og orðið glöð yfir því, hún má fagna því í einrúmi, en að hún skuli vera komin með bílpróf það er allt annar handleggur. Eftir að hafa skutlað henni þvert og endilangt yfir landið í 2 ár er ég loksins að fara að fá eitthvað borgað til baka, þ.e. í bílferðum. Alveg sama hvað klukkan slær.
  • Bróðir minn kær átti einnig afmæli og varð hann 6 ára þann 21.nóv. sl. Ótrúlegt hvað þetta kvikindi eldist hratt. Mér finnst eins og það hafi verið í gær þegar hann fór loks að gera gagn, þ.e. ná í hluti og hrista púðann minn þegar ég er þreyttur. Núna hins vegar er hann fær um að vísa burt sölumönnum og svara í símann. Þarf eitthvað meira ?
  • Ég málaði herbergið mitt og var ég mjög stoltur af sjálfum mér. Fékk reyndar hjálparhönd frá Sigurlaugu og vil þakka henni kærlega fyrir það. Án hennar hefði ég alveg getað þetta ég hefði bara verið lengur að því.
  • Ég tók þátt í Grease, leikriti nemendafélagsins. Það var skemmtileg lífsreynsla en stundum frekar tímafrek. Lokasýningin var hápunktur leiklistarferils míns og ætli ég hætti ekki að leika hér eftir, bara til að geta hætt á toppnum.
  • Fór á árshátíð Steinullarinnar á Mælifelli. Þemað á þeirri hátíð var "Ekkert tómt glas í húsinu" og tóks það frekar vel og bara jafnvel of vel hjá þjónunum. Ef maður var ekki varkár þá fylltu þeir öll glösin og þeir sem eru vel upp aldir vita að maður fer ekki frá borði fyrr en að hafa klárað matinn sinn og á það líka við um það sem er í glasinu.
  • Ég fór að hefja störf aftur í Steinullinni eftir leiðinlega viðbeinsbrotið mitt. Veskið farið að þyngjast aftur.
  • Ég festi ráð mitt og er mjög lukkulegur með það.
  • Fór til Akureyrar um daginn og skaust aðeins í búðina "17", held hún heiti það. Ég hef nú ekki haft hátt um það en ég bara get ekki verið innan um karlmenn sem afgreiða í svona búðum. Mér bara líður illa og langar til að hjálpa þeim. Senda þá í sveit eða bara segja þeim að haga sér almennilega. Nema náttúrulega að þeir keyri á hinum vegarhelmingnum, þá er ég orðinn of seinn.

 Þetta var nú frekar stutt og léleg færsla en ég verð bara að láta skynsemina ráða og fara að sofa. Þarf að hafa orku fyrir heilaleikfimi morgundagsins. Bless bless.

Konni og Sigurlaug á Bishop Blaize
Mynd af afmælisbarninu Sigurlaugu og mér á góðri stund í Manchester. Tilviljanakennt hversu margar myndir voru teknar af mér þarna úti með bjór.. og þó? En það mun líka standa á legsteininum mínum "Konráð.. Alltaf léttur"


Ég og bóðir minn Gunnar fyrir ekki löngu síðan. Þetta er ekki bjór sem ég er að reyna að fela heldur er þetta svaladrykkur sem frændi úr Svíþjóð senti. Í Svíþjóð er gott að vera.

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 16:06:05 / konni

Manchester

Hæ. Þreyttur en sáttur. Frábær ferð á enda og er spurningin ekki hvort farið verður aftur heldur hvenær. Þetta var í annað skipti sem ég fer á leik og báðar ferðirnar voru á þessu ári, hin í febrúar. Einungis tveir einstaklingar í þessum 12 manna hópi sem fór höfðu farið á leik áður, ég og Rúnar. Aðrir tveir höfðu þó verið að slæpast eitthvað í borginni áður en ekki farið á leik þannig að tilhlökkunin var gífurleg.



Það er ekki spennandi að sitja og bíða í Leifsstöð kl. 05:30

Flugið var kl 07:00 á föstudagsmorgni og var flogið til Skotlands (Glasgow) og ekið þaðan í rútu til Englands (Manchester). Löng og þreytandi rútuferð sem áfengi stytti þó aðeins en ekki nóg. Við höfðum það þó loks til Manchester og þá var farið beint á hótelið þar sem fátt var afrekað það kvöld. Morguninn eftir var lagt af stað snemma á völlinn (Old Trafford) til að upplifa stemmninguna fyrir leik og hana fengum við svo sannarlega beint í æð. Fórum á bar sem er rétt hjá vellinum og heitir Bishop Blaize en þar hittast þeir hörðustu fyrir leik og syngja allan tímann. Lögin eru líka dásamleg og ég velti því fyrir mér hvers vegna það eru ekki samin nokkur lög um Tindastól og leikmenn liðsins. Þegar maður labbar inn á völlinn á Króknum og heyrir í Kristjáni Gísla syngja stuðningsmannalagið þá hugsar maður bara "Jæja þetta er búið.." En ef samið yrði alvöru lag þá yrði stemningin kannski öðruvísi.



Frekar þröngt var inni á Bishop og varla var hægt að hreyfa sig



Forsöngvarar stóðu á upphækkun sem var hálfgert svið

Lagt var af stað á völlinn sirka 40 mín. fyrir leik og var það alveg nauðsynlegt ef við ætluðum ekki að missa af byrjuninni, því mannmergðin er svakaleg. Það var búið að loka nærliggjandi götum og lögregluþjónar, hvort sem á tveimur jafnfljótum eða á hestbaki, voru allt í kring.

 

Brugðið á leik fyrir leik með lögregluþjóni

Við gátum varla verið heppnari með sæti en við sátum 7 sætaröðum frá vellinum sem var frekar nálægt. Ef maður einbeitti sér og horfði vel var hægt að sjá unglingabólurnar á Fletcher. Heppnin var með okkur á þessum leik vegna þess að United vann sannfærandi 4-1 sigur og var hverju marki fagnað ákaft. Sem betur fer var ég orðinn góður í viðbeininu því ef ekki þá hefði ég ekkert á leik að gera. Get alveg sett inn myndband en ég tek bara Fóstbræður á þetta og nenni því ekki. Held að ég hafi ekkert drukkið á leiknum vegna þess að þú skýst ekkert og pissar á Old Trafford, þú bíður í röð og endar sú bið væntanlega með slysi.



Einhvern veginn svona var okkar sjónarhorn, ágætlega nálægt.

Eftir leik var farið á hótelið þar sem maður fann barnið í sér og gerði skandala. Ljós var brotið að verðmæti 300 pund og hrekkir framkvæmdir, segi ekki meir. En Keflvíkingar sem voru með í ferðinni létu okkur þó líta út eins og dýrlinga því þeir settu ránna frekar hátt, segi ekki meir.
Á sunnudeginum fórum við í Trafford Centre sem er mjög stór verslunarmiðstöð með mikið af ófögru kvenfólki.
Á mánudaginn fórum við í skoðunarferð um völlinn sem endaði í Megastore þar sem pundin flugu úr veski sumra. Ferðin endaði svo frekar leiðinlega á 6-7 tíma bið á flugvellinum vegna seinkunar. En í heildina litið var þetta frábær ferð í flest alla staði. P.s. þetta er bara brot af myndunum sem voru teknar í ferðinni, hinar mun ég væntanlega setja á Facebook.



Hópurinn fagri.


United!! United!! United!!
Lag ferðarinnar ----> "We'll drink and drink and drink to Eric The King, The King, The King..!!"
Ekkert lið toppar Man.Utd. Punktur.


» 21 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 11:56:55 / konni

Uppskeruhátíð

Hæ. Núna er liðinn sá tími sem ég bíð eftir á hverri önn, en það er miðannarprófsvikan. Þetta er svo dásamlegur tími, enginn skóli og þú rétt ræður því hvort þú viljir læra aðeins fyrir miðannarprófin eða ekki. Þessi vika sem sagt þaut hjá og sem betur fer því núna í gær var uppskeruhátíðin í fótboltanum. Svo er Manchester næst á dagskrá en lagt verður af stað þann 26. október Á mánudaginn eru þrjár vikur síðan ég brotnaði og er þetta vonandi að gróa rétt, ef ekki þá er ekki mikið sem ég gert í málinu en fær og menntaður læknir gæti kannski lagt hönd á plóg.

Núna þarsíðasta föstudag lögðu nokkrir vaskir drengir í ferð til Akureyrar sem átti að vera sambland af gjörningi og heimsókn til Arnars Freys. Drengir í þessari ferð voru (eftir upphandlegsvöðvum) : Konni, Jóhann, Rúnar, Gröndal og Kári. Akureyringingar eru upp til hópa leiðinlegt fólk og merkikerti, íþróttalega séð alla vega en samt álpast maður alltaf þangað aftur.
Fyrsti stoppustaður var Glerártorg sem er afsökun Akureyringa fyrir verslunarmiðstöð. Því næst var ætlunin að gera stutt stopp í búðinni "Frúin í Hamborg" sem er verslun með 1960 þema, sem er náttúrulega bara snilld. Því er hægt að ímynda sér vonbrigðin þegar við sáum að það var búið að færa hana. Þetta var agalegt og aumingja Jóhann sem hafði aldrei stigið fæti inn í verslunina, heldur einungis heyrt sögur. Ég leiddi hann bara afsíðis, faðmaði hann og strauk honum um hárið og hann hágrét í fanginu á mér.
Lokaáfangastaður okkar var heimilisleg íbúð Arnars eða nei reyndar ekki því við fórum allir saman í bíó eftir heimsóknina en alla vega, við fengum smjörþefinn af því hvernig það er að búa á Akureyri og svo skyggndumst við líka inn í myndina "Pink Flamingos" sem ég mæli engan veginn með að fólk sjái.

En að gærkvöldinu. Við nokkrir strákar höfðum eytt allri vikunni í að taka upp stuttmyndina "Stóllinn 2007" sem varð svo ekkert úr því tæknin stríddi okkur allverulega. Við vorum í tímaþröng og því varð ekkert úr því að sýna myndina. En við eigum allt efnið og stefnan er að sýna það í næsta fótboltapartýi.
Búningaþema var á hátíðinni en það náði þó ekki til allra og ber ég engann kala til þeirra. Ég sjálfur var nú bara með einhver gríngleraugu ef svo má að orði komast á meðan sumir komu í heila samfestingnum. Haukur kom sem Pólskur verkamaður, Gústi var reiðmaður og Dejan var klámmyndaleikari svo dæmi séu tekin. Góð dagskrá, góður matur og auðvitað frábær félagsskapur, þetta er góð blanda og var útkoman frábært kvöld sem endað svo á Papaballi sem var mjög fínt. Verðlaun voru veitt í 2.flokki karla, mfl. kvenna og mfl. karla. Ég var svo lánsamur að vinna "Besti leikmaður" og "Markahæsti leikmaður" 2.flokks þetta sumarið. Kári Kantur vann "Efnilegasti" og "Besta ástundun" Guðni kom svo með "Mestu framfarir". Ég skil nú samt ekki hvernig ég og Kári fórum að því að vinna eitthvað því við létum Jogvan (Jóa þjálfara) iðulega heyra það hversu heppinn hann væri með eiginkonu. Reyndar fórum við ekki voða fínt í það en ég bara get ekki birt það hérna á netinu. En önnur úrslit voru:
M.fl. karla:
Bestur: Dejan Djuric
Efnilegastur: Arnar Skúli Atlason
Mestar framfarir: Ingvi Hrannar Ómarsson
Ástundun: Brynjar Rafn Birgisson
Markakóngur: Ebbe Nygaard
M.fl kvenna:
Best: Vanda Sigurgeirsdóttir
Efnilegust: María Petra Björnsdóttir
Mestar framfarir: Svava Rún Ingimarsdóttir
Ástundun: Halla Mjöll Stefánsdóttir
Markadrottning: Hjördís Ósk Óskarsdóttir 




Fleiri myndir eru á facebook hjá Ingva Hrannari og á tindastoll.is þar sem þið getið einnig lesið meira um hátíðina. En facebook er nýtt fyrirbæri sem ég var að uppgötva. Hef reyndar alltaf vitað hvað þetta er en ég bara nennti aldrei að skrá mig á þetta en ég mæli með þessu. Sniðug síða.
Ég þakka öllum fyrir snilldar hátíð og bið ykkur lengi að lifa, bless bless.


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 23:33:02 / konni

Skánandi

Hæ. Það hefur ekki verið venjan hjá mér að blogga svona fljótlega aftur en fyrst ég er viðbeinsbrotinn þá gilda aðrar reglur. Ég má gera hluti sem ég mátti ekki gera áður og ég þarf ekki að gera hluti sem ég þurfti að gera áður. En batinn er nú á góðri leið og finn ég dagamun. Ég öskra ekki lengur í koddann þegar ég legst á hann og núna í gær klæddi ég mig í peysu aleinn. En enginn til að sjá það og enginn til að faðma.. Ég reyndar hefði ekki getað faðmað neinn en ég hefði viljað eiga möguleikann á því. Ég náði líka þeim áfanga að geta keyrt, það hefði verið agalegt hefði það dregist eitthvað lengra. Núna er bara málið að láta vítamínin vinna sitt verk og láta þetta gróa.Ég sagði reyndar ekki mikið frá því í síðustu færslu að ég tjaslaði saman á mér öxlinni og hafði mig á ball. Það er nú saga að segja frá því og ekki er hún merkileg en ég kem nú samt með hana. Eftir að hafa setið að sumbli með félögunum varð löngunim að fara á ball alltaf sterkari og sterkari. Vorum staðsettir í húsnæði Snorksins og flugu brandararnir fram og aftur. Veit ekki alveg hvort einhver fór að segja MA eða HA brandara en alla vega á augabragði var íbúðin orðin full af menntaskóla- og háskólakrökkum frá Akureyri. Þar sem ég hræðist vel gefið fólk forðaði ég mér út á svalir ásamt öðrum tveimur illa gefnum vinum mínum (reyndar er annar lögfræðingur og hinn kennari) og ræddum við þar hin ýmsu mál eins og t.d. af hverju botnfrjósa stöðuvötn ekki? Þá heyrðist kannski úr íbúðinni "Stöðuvatn botnfrýs ekki vegna eðlismassans" Þetta var kannski ekki alveg svona en í svipuðum dúr. En samræður kvöldsins enduðu svo með því að ég brá á það ráð að fá hjálp frá vini og vefja öxlina á mér fasta við síðuna. Heppnaðist það vel og ákvað ég því að skella mér á ball sem ég sé ekki eftir að hafa gert. Skemmti ég mér vel þar og komst ég klakklaust í gegnum allar þær dyr sem á vegi mínum urðu og vil ég þakka vinum mínum fyrir það að hafa myndað fyrir mig V svo ég gæti labbað í gegn. Öll mín samtöl byrjuðu líka á því að ég rétti fram hendina og tilkynnti að ég væri illa gefinn og viðbeinsbrotinn. Þetta er slæm blanda og laðar maður ekki að sér marga einstaklinga, nema þá lækna og kennara því þeir vilja hjálpa. Sem var einmitt meinið þetta kvöld því á ballinu lenti ég í samræðum við náttúrufræðikennarann minn, sé svo sannarlega ekki eftir því.Í síðustu færslu sagði ég frá því hvernig karlmenn úr sveit haga sér stundum í glasi. Þetta er að sjálfsögðu ekki algilt enda ef sú væri raunin væri karl faðir minn hundleiðinlegur, enda úr sveit. Þetta voru meira svona pælingar hjá mér og er ég að spá í að koma með pælingar í hverju bloggi. En þær munu alls ekki snúast um pólítík þar sem mér finnst hún leiðinleg. Já eða og þó það er nú hægt að pæla aðeins í þessum mönnum. Að sjá þessa kóna vera að "rífast" í kastljósinu er bara kjánalegt. "Ekki grípa fram í fyrir mér" og "Villtu leyfa mér að klára" er algengt að heyra í rökræðum. Ég gæti persónulega ekki verið þingmaður, ég myndi missa mig og segja manninum á móti til syndanna. Ég gæti ekki rifist við hann á jakkafatamáli.Önnur hugvelta hjá mér er að á annarri hverri síðu er slúður og þú getur eiginlega gengið að því vísu að það er verið að tala niður til einhvers þar. Að tala niður til einhvers á netinu og ég tala nú ekki um þegar fólk kýs nafnleynd, finnst mér afskaplega hvimleytt. Það er ekki hægt að leggjast lægra en þetta. Ef litið er á Tindastólssíðuna er þriðja hver umræða stofnuð af einhverjum sem sér ekki sóma sinn í því að gefa upp nafn. Eða þá að sniðug umræða sé stofnuð en svo er fljótlega reynt að skjóta hana í kaf með leiðindum.
Ég á alveg örugglega eftir að fá einhver nafnlaus komment eftir þessa færslu. Bless bless.


» 12 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 17:59:45 / konni

Vængbrotinn

Hæ. Veraldarvefurinn er ágæt leið til að segja öllum það sem á daga mína hefur drifið. Það eru nú samt engin ósköp í fréttum nema það að ég viðbeinsbrotnaði aðfaranótt þriðjudags. Fótboltaslys eru ekki spes. Nokkrir strákar saman komnir til að fagna afmæli mínu sem var einmitt á þriðjudeginum og vildi ekki betur til en að ég fór mér að voða. Slysin gera ekki boð á undan sér og því fékk ég að kynnast. Hefði svo sem alveg viljað sleppa þessu, tala nú ekki um allan kostnaðinn sem fylgir þessu. Ég bara ráðlegg öllum að vera varkár þarna úti því ég mátti greiða afgreiðslukonunni á sjúkrahúsinu 4500 kr. fyrir að hafa kallað út lækni kl.3 að nóttu og svo röntgen. Ég hefði nú betur sleppt því að fara á spítalann og þegið frekar boð Valda um að kippa mér aftur í axlarliðinn, verkurinn var það mikill að hann leiddi út í öxl og þá náttúrulega lagði hann saman tvo og tvo og fékk út að ég væri farinn úr lið. Læknirinn gerði nú heldur ekki mikið nema hann gaf mér parkódín sagði mér að ég væri brotinn. Ég er enginn læknir, en ég hefði alveg getað sagt mér það sjálfur. Ég kannski hugsa mig tvisvar um næst þegar ég brotna. Ekkert að æða á sjúkrahús eins og einhver asni.
En þessu fyglja vítiskvalir og sjálfsbjargarleysi sem reyndar fara minnkandi. Fyrstu 4 dagarnir voru samblanda af því að berjast við að liggja í sem minnst sársaukafullri stellingu og óhljóða. Enda er það agaleg tilfinning að finna það þegar beinendarnir rekast og nuddast í hvorn annan. Nóg komið.
Málshátturinn "enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur", sem er minn uppáhalds málsháttur, sannast svo sannarlega hjá mér. Það eru ýmsir hlutir sem ég hef þurft að kyssa bless og mun ekki geta gert þá í einhvern tíma.

  • Keyrt bíl
  • Þurrkað mér eftir sturtu
  • Handahlaup
  • Mætt í vinnuna. Sem er frekar slæmt því ég er nokkurs konar þriðja tekjulind heimilsins
  • Klætt mig sjálfur
  • Hlegið dátt
  • Hóstað og hnerrað. Ég er að reyna að hætta.
  • Hlaupið
  • Snöggar hreyfingar.

Svona mætti lengja telja. En hvað er ég samt að væla? Ég er þó með handlegginn, það er meira en margir geta sagt. Nei nei ég er ekkert væla, ég er svona meira að koma upplýsingum á framfæri og með því að reyna að fyrirbyggja það að einhver geðsjúklingur, sennilega úr sveit því að þar kljást menn við þá hvítu allan daginn og geta ekki sýnt styrk sinn nema með handabandi og klappi á bak á einstaklingum sem hrökkva þá upp og segja að þetta hafi nú verið óþarfi en þá koma þeir af fjöllum og biðjast kannski afsökunar en um leið bíða eftir viðurkenningu á því hvílíkt afl þeir hafi í handleggjunum og ef þeir fá hana ekki fara þeir að lyfta nærliggjandi lauslegum hlutum, jafnvel manneskjum og ef það dugar heldur ekki til viðurkenningar skilur það eftir ör á sálinni sem verður svo aðdragandi þess að kvöldið endar með slagsmálum.... Fyrirgefið mér, smá útúrdúr.. En hann kom frá hjartanu. Hvar var ég nú aftur? Já einmitt þessi skrif eru til að fyrirbyggja það einhver faðmi mig að sér, kannski aftanfrá og meiði mig þannig. Þeir sem líta á þessa síðu eru því við öllu búnir þegar þeir rekast á mig næst. Gott í bili. Bless bless.



Spurning dagsins: Hefurðu brontað?


» 15 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 00:30:25 / konni

Gamall

Hæ. Ég var ekki alveg nógu víðfemur í síðustu færlsu þar sem Portúgal var aðal umræðuefnið og því mun ég fara aðeins ofan í saumana á busavígslunni og byrjun þessarar annar.
Þetta er í fyrsta sinn sem mér hefur fundist ég vera gamall í skólanum. Þetta er ekki nógu sniðugt. Fyrsta daginn kíkti ég á miðhæðina, skannaði hana og sagði: "Hvur andskotinn er í gangi hérna?" Ég þekkti ekki neinn. Enda var ég að gæla við það að taka mér skrifblokk í hönd og fræðast aðeins um þetta fólk sem var að koma. En þegar ég var rétt byrjaður að raula "Þrek og Tár" af sorg komu nokkur kunnuleg andlit og var mér mikið létt.
Föstudagurinn var undarlegur líka. Ég hafði ekki þessa löngun til þess að vera böðull og hrækja aðeins á busana. Sama gilti um vígsluna, ég hélt mig í hæfilegri fjarlægð frá öllum skarkalanum og brosti að þessu öllu saman. Það var svolítið eins og ég væri foreldri. Skimandi út um allt hugsandi "Hvar er nú helvítis drengurinn..? Hvað er hann að gera af sér núna..?"
Busaballið var frekar þurrt og slappt. Ekki var leyfilegt að fara með áfengi inn í húsið sem er alveg skelfilegt. Þetta fólk sem setur þessar reglur eru á góðri leið með að banna 16 ára dansleiki í firðinum. Ekki það að þetta snerti mig neitt, ég er 18 ára.
Önnin hefur samt byrjað mjög vel og kvarta ég ekki yfir miklum skóla, enda er ég ekki mikið vælandi týpa. Sé þó samt ástæðu til að ræða aðeins um einn áfanga sem ég er í. Ég hef sjaldan setið jafn leiðilegan áfanga. Ef ég næ að sitja hann út önnina og láta ekki fella mig á mætingu að þá get ég allt. Einstaklingurinn sem kennir áfangann vegur hann aðeins upp en ekki nógu mikið. Þessi einstaklingur hefur útlitið með sér og hélt ég að þetta væri fínasti kennari. Annað kom á daginn og er hann eins og úflur í sauðagæru. Bara strangur og kýs Samfylkinguna. Gröndal er þó með mér í þessum tímum og mun hann verða stoð mín og stytta. Takið eftir því hvað ég kem aldrei inn á hvaða áfangi þetta er þannig að það var kannski frekar tilgangslaust að nefna þetta. Ég hef nefnilega komist að því að það er aldrei að vita hverjir lesa þetta þannig að aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Ég mætti í áheyrnarprufurnar í gær. Það hefði ég ekki átt að gera. Ég svo gott sem gróf mína eigin gröf með því. Hefði bara átt senda Ægi póst um að ég ætlaði að vera sviðsmaður en núna sé ég fram á það að þurfa kannski að leika eitthvað smáræði. Enda er ekki hægt að segja nei við Ægi því hann er félagi. En það verður forvitnilegt að sjá hvernig þetta myndast og hvernig útkoman verður í nóvember. Btw leikritið er Grease.


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 00:38:13 / konni

Ógleymanlegt

Hæ. Góðan daginn, einhver löngun til að skrifa greip mig allt í einu og ákvað ég að láta verða af því. Eftir að hafa ekki skrifað hérna í næstum því mánuð áttaði ég mig á því að það getur verið ágætt að grípa stundum í lyklaborðið.
Það sem hefur verið í gangi síðastliðna daga er að sjálfsögðu busavikan, meira um hana seinna og vík ég mér því að utanlandsferð minni og Guðna.
Það var í sæmilegu veðri sem ég og Guðni Gröndal kvöddum Ísland og framundan var þreytandi 4 tíma flug með öllu tilheyrandi. Með því er ég að meina: Skelfilegur matur, grátandi krakkar og grátleg bíómynd. Er maður að fara fram á mikið að sýnd sé mynd við allra hæfi ? Ég man ekki einu sinni hvað þessi mynd hét, minnir að hún hafi verið í anda "Death Proof". En nóg um það. Á flugvellinum tók á móti okkur sálufélagi Guðna og fór vel á með þeim félögum, enda höfðu þeir margt að tala um (á portúgölsku). Fyrir mig var þetta svona "Blessaðir látið mig ekki trufla ykkur". En við fórum strax í mat til fjölskyldunnar sem Guðni var hjá og eru þau besta fólk. Sama var uppi á teningunum þar, ég svona reyndi bara að vera ekki fyrir. Þau reyndu nú samt alveg að tala við mig en það var þá á portúgölsku með smá enskuslettum inni á milli. Þetta er svona svipað og að reyna að tala við Dejan.


Frábær strönd með öllu tilheyrandi... Glaðningur fyrir þann sem finnur Guðna á myndinni.

Hótelið okkar var fjögurra stjörnu lúxus hótel og starfsfólkið frábært. Sé svolítið eftir því að hafa aldrei gefið þeim þjórfé. Ekki það að við vorum nískir. Ég gaf t.d. betlara í Spáni 1 evru. Eða ég ætlaði að gera það en svo sá ég vatn auglýst á 1 evru. Vatn er mjög mikilvægt í heitu landi.
En já meðan ég man. Það hafa verið að ganga sögur um að ég og Guðni höfum bara legið allan tímann í sólbaði. Það er bara ekki rétt. Við vorum í fyrsta lagi alltaf vaknaðir það seint að allir bekkirnir í garðinum voru uppteknir og svo í öðru lagi að þá eru sólböð bara hreint út sagt ekkert spennandi. Okkur fannst miklu skemmtilegra að fara á hestbak á ströndinni og láta renna í bað fyrir hvorn annan. En reyndar sko að ef svo ólíklega vildi til að við náðum bekkjum, sem var þá um 5-6 leytið, að þá vorum við mjög stutt. Við erum t.d. ekkert mjög brúnir á bakinu og er einföld skýring á því. Það eru engin geimvísindi að eftir nokkra bjóra er ekkert þægilegt að liggja á maganum, þar liggur hundurinn grafinn.


Mátti prísa mig sælan með að geta legið einhvers staðar þarna í garðinum.

Ég tók einhverjar myndir þarna en þær voru ekki frábærar og sumar sluppu ekki gegnum ritskoðun, enda hefur myndataka ávallt verið fötlun mín, það og að geta ekki læðst, brakar alltaf svo í ökklunum á mér.
En við félagarnir skelltum okkur yfir eina helgi til Spánar, nánar tiltekið til Sevilla. Það er borg þar sem sjávargola er óþekkt fyrirbæri og hreyfðist því ekki hár á höfði. Í 44 gráðu hita getur það verið óþægilegt. En við reyndum nú að bera okkur eftir björginni og fórum því úr að ofan, settum bolinn á höfuðið og brettum upp á stuttbuxurnar. Uppskárum að launum fullan bíl af unglingum flautandi á okkur og sendandi okkur puttann. Húmoristar þarna á Spáni.


Dæmigerð verslunargata í Sevilla

 Herbergið okkar í Sevilla var ömurlegt. Óþægilega lítið og ekkert nema nautaat í sjónvarpinu eða þá talsettar bíómyndir. Staðsetning hótelsins var líka hræðileg, ef maður vaknaði ekki við hanagal að þá voru það skothvellir. Þeir mega þó eiga það Spánverjarnir að þetta er hræódýrt land. Liggur við að það dýrasta hafi verið betlararnir nei ég má ekki segja þetta.


Ætluðum á nautaat en enduðum í slappri skoðunarferð.

Það sem stendur upp úr frá Spáni er án efa tívolíið. Skelltum okkur í nokkur tæki og komst ég að því þar af hverju bjór er ekki seldur í þeim tívolíum sem koma til Íslands. Áfengi og rússíbani fara ekki vel saman, fengum rjómann af því. Svo er líka gott ráð að finna sér skugga ef þú ert í biðröð og láta ekki riðjast fram fyrir þig, lentum pínu í því. En það voru líka bara sjómenn sem voru búnir að vera að glíma við þann græna og voru taugatrekktir.


Takið eftir skóbúnaði Guðna, í þessu gengum við ávallt.

Að komast aftur á hótelið í Portúgal var eins og að koma heim. Fólkið í lobbíinu heilsaði okkur vinalega (Guðna) og talaði við okkur um daginn og veginn (Guðna).
Fólk er að spyrja mig hvað hafi staðið upp úr og þeirri spurningu er afskaplega erfitt að svara því það var allan tímann svo gaman og allt svo frábært. Ég get samt deilt með ykkur einu frekar vandræðalegu atviki sem ég lenti í. Þannig er mál með vexti að Strandverðirnir frægu í samnefndum þáttum eiga alltaf svo auðvelt með að kasta sér í sjóinn á ströndinni og nýta þeir sér þá, að ég hélt, útsogið. Ég ákvað að sannreyna þetta og kastaði mér í útsoginu en var aðeins of seinn og skall bara í sand og þang. Að standa upp var frekar vandræðalegt og lét ég mig hverfa fljótlega. Einnig er eitt annað sem við gerðum. Við fórum í langa kvöldsiglingu yfir strandlengjuna. Héldum að það væri eitthvað sem allir unglingar gera. Komumst svo að því þegar um borð var komið að þarna voru einungis giftir einstaklingar og þá frekar í eldri kantinum. Það var allavega eitthvað rangt við þessa siglingu og ákváðum við að ræða hana ekkert frekar.


Við tókum ekki myndir af hvor öðrum í siglingunni enda hefði það vakið athygli og grunsemdir.

En eins og áður hefur komið fram að þá var þetta frábært hótel og starfsfólkið vann sína vinnu og gott betur. Þannig var nú það að við nýttum allt leirtau þar til það var búið og þá var komið að því að vaska upp. Ætluðum að geyma það til morguns næstsíðasta dagsins og var þá planið að draga strá. Vildi þá svo ekki heppilega til að hreingerningakonur sáu bara um þetta allt saman meðan brugðum okkur út í búð.
Það er alveg örugglega eitthvað sem ég er að gleyma úr þessari ferð en það verður að hafa það. Ég er búinn að skrifa allt of mikið og geymi ég því busavikuna þar til næst, set kannski fleiri myndir inn við tækifæri. Takk fyrir bless bless.


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 11:11:55 / konni

Ferðalangur

Hæ. Langt síðan síðast og væntanlega langt þar til næst, ef það verður eitthvað næst. Er á leiðinni út í sólina eftir 3 daga og mun ég koma heim 28.ágúst þannig að ég næ busavígslunni.
Svo ég segi aðeins frá einhverju sem gerst hefur síðan síðast að þá fór ég suður að spila við Álftanes. Eftirminnilegur leikur vægast sagt. En Álftanes er náttúrulega sko villimannasamfélag. Það er orðið svolítið um of þegar áhorfendur eru farnir að kasta grjóti inn á völlinn og veitast svo að leikmönnum eftir leikinn. Kannski voru þetta bara menn sem að eru orðnir þreyttir á hinu hversdagslega lífi, búnir að vinna lengi hjá Flytjanda við að stýra þeim stóra og finnst ekkert betra en láta illa á knattspyrnuleik í 3ju deildinni. Ef maður væri nú með svona hugsunarhátt að þá myndi maður a.m.k. byrja í 2.deildinni.
En ég varð eftir í borginni og heilsaði upp á, að ég hélt, löngu glataðan ættingja. Skoðuðum það sem hægt er að skoða í borginni og fórum svo í bíó. Fyrst á Die Hard 4 sem ég varð ekki fyrir vonbrigðum með og svo Death Proof sem ég vil aldrei sjá aftur. Hún skar mig að innan á þann hátt að ég vil helst ekkert fara í bíó aftur. Nema til þess að sjá mann drekka 2.l af rauðum Kristal eins og Jói gerði.
En ég slapp heill heim en komst að því seinna að það hefði getað farið verr. Þetta er bara orðið kexruglað lið sem að býr þarna í Reykjavík. Ég þori ekki lengur að skipta um dekk. Það er nú samt ekki eins og ég hafi alltaf verið í því.

Svo ég fari að klára þetta blogg að þá þakka ég fyrir samveruna á þessari síðu og bið ykkur öll vel að lifa. Ég byrjaði með síðuna í október 2005 og á ég meira að segja öll mín blogg í tölvunni. Kannski ég fari að birta bestu bloggin?
En ég skal kannski koma með ferðasögu frá Portúgal ef þið getið svarað einni spurningu.
Hvað geri ég (hjátru) fyrir hvern einasta útileik sem ég spila ?
Bless bless.

» 10 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 21:21:07 / konni

Tilhlökkun

Hæ. Ég er að rifna úr tilhlökkun, get ekki beðið eftir því að komast út í sólina. Ég er kominn með snert af hálsbólgu og það er sumar, það má ekki.
Já það er ýmislegt sem má ekki. Ég hefði alveg viljað láta banna Kristjáni Baldurssyni (Danna Sæta) að yfirgefa Krókinn. Það er skarð inni í klefanum sem seint verður fyllt. Honum eru eignaðar margar fleygar setningar og er það mál manna að hann hafi upphaflega átt hugmynda að "vodka/martíní hristan en ekki hrærðan" sem Bondinn stal svo á kaldrifjaðan hátt.

 
                                                     Meistari Danni


Síðasta laugardag gerðum við í fótboltanum okkur glaðan dag líkt og svo oft áður og fórum í golf. Ég hafði var að vinna nóttina áður og hafði asnast til að detta og slasa mig á handlegg, þannig að sveiflan var sett úr skorðum. En það geta allir verið með í golfi og var ég því kylfusveinn Donna og Jóa. Skipt var í þrjú holl og var ég með Bibba, Pálma, Fána, Jóhanni Helgasyni, Donna og Bötlernum. Menn voru auðvitað misjafnlega hæfileikaríkir en það leit út fyrir góðan hring þegar liðið mitt (Donni og Jói) fór fyrstu holuna á 3 höggum. En svo voru 20-30 högg notuð á næstu 3 holum þannig að ég róaði mig aðeins.
Seinna um kvöldið var kveðjuhóf fyrir Danna haldið í húsakynnum hans. Mönnum var sagt að mæta með stól en ég hugsaði nú að þarna væri eitthvað gott grín í gangi. Annað kom upp á daginn og var íbúðin tóm þegar við mættum, enda maðurinn að flytja. En það var heljarinnar fjör þarna.

Já maður á eftir að finna fyrir einmannaleika eftir svona fráhvarf. Ég er samt ekki á leiðinni í að hringja í Rás 2 og tjá allan minn vanda og ræða daginn og veginn eins og sumir gera. Ó nei, maður kemur í manns stað og heyrði ég því fleygt fram að Svenni ætli að koma aftur. Vonandi.

2.flokkur gerði góða ferð suður síðasta mánudag og vann Gróttu 1-2 sanngjarnt. Var þetta minn síðasti 2.flokks leikur og kvaddi ég á viðeigandi hátt, bæði í rútunni og á vellinum. Skulum samt ekki fara frekar út í þá sálma því málið gæti verið í rannsókn hjá Suðurleiðum.

Ég renndi í gegnum Fréttablaðið fyrir stuttu og vakti tvennt athygli mína. Hundspottið frá Akureyri og göng til Vestmannaeyja. Er ekki bara tímaspursmál hvenær þessar litlu eyjur þarna munu sökkva? Það er gríðarleg virkni í jörðinni á þessu svæði. Fyrst það er verið að gera göng þarna af hverju ekki þá að reisa blokkir eldri borgara í hlíðum Heklu? Vestmannaeyjar hafa ekkert sem mig langar til að sjá. Það er fólksfækkun þarna ár eftir ár.
Svo er það þessi hundur þarna. Það var haldin minningarathöfn um hann í Reykjavík. Búið að sóa glás af peningum í þetta kjaftæði. Hefði átt að senda bara góða refaskyttu á eftir honum, Biggi í Valagerði hefði haft hann eftir 3 daga. Nei nei ég er ekki illur, þetta er bara svo mikið rugl. Auðvitað átti að leita að hundinum en þá bara eigundurnir, ekki blanda lögreglunni í þetta. Ef ég myndi fara niður á stöð núna með sama vandamál hvað ætli yrði sagt?  "Já góðan daginn, heyrðu hundurinn minn stakk af upp í fjall, til í að koma og leita með mér?"  "Nei ekki að ræða það"   En nóg um þetta í bili því ég þarf að fara að taka mig til fyrir vinnu, bless bless.


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9